Gunnar Steinn samdi við Nantes

Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson. www.mbl.is

Franska handknattleiksfélagið Nantes hefur gert samning við Gunnar Stein Jónsson, leikstjórnanda hjá Drott í Svíþjóð, um að ganga til liðs við félagið að þessu keppnistímabili loknu.

Nantes tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í kvöld og boðaði að hann yrði formlega kynntur til sögunnar á morgun.

Gunnar Steinn er 24 ára gamall og lék áður með HK en hann hefur verið í stóru hlutverki hjá Drott í sænsku úrvalsdeildinni síðustu ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert