Ingibjörg Jónsdóttir hin reynda handknattleikskona í liði ÍBV var að vonum ánægð með sigurinn á Fram í kvöld í þriðja undanúrslitaleik liðanna í úrvalsdeild kvenna, N1-deildinni, 19:18, eftir framlengingu.
„Loksins féll eitthvað með okkur," sagði Ingibjörg. „Við vorum komnar upp að vegg fyrir þennan leik auk þess sem við vorum mjög óánægðar með heimaleikinn okkar gegn Fram á síðasta sunnudag. Að þessu sinni börðumst við vel og uppskárum samkvæmt því," segir Ingibjörg sem vonast til að fá góðan stuðning í fjórða undanúrslitaleik liðanna sem fram fer í Vestmannaeyjum á laugardaginn.
Nánar er rætt við Ingibjörgu á meðfylgjandi myndskeiði.