Þórir öflugur í stórsigri Kielce

Þórir Ólafsson.
Þórir Ólafsson. AFP

Þórir Ólafsson fór mikinn með pólska meistaraliðinu Kielce þegar liðið burstaði Kwidzyn, 41:19, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Þórir var markahæstur í liði Kielce með 8 mörk og næstur kom Ivan Cupic með 7.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert