Lærisveinar Arons í undanúrslit

Aron Kristjánsson.
Aron Kristjánsson. mbl.is/Eva Björk

KIF Kolding, lærisveinar Arons Kristjánssonar landsliðsþjálfara, tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum um danska meistaratitilinn í handknattleik.

Kolding burstaði Bjerringbro/Silkeborg á heimavelli sínum, 32:22, eftir að staðan hafði verið, 17:10, í hálfleik. Kolding var fyrir leikinn búið að tapa tveimur leikjum í röð og varð að vinna leikinn í dag til að komast í undanúrslitin.

Kári Kristján Kristjánsson skoraði 2 af mörkum Bjerringbro/Silkeborg í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert