Dagur Sigurðsson, þjálfari þýsku bikarmeistarana í handknattleik, Füchse Berlín, stóð önnum kafinn við að grilla pylsur ofan í stuðningsmenn liðsins í dag ásamt leikmönnum og framkvæmdastjóra fyrir utan keppnishöll liðsins í Berlín.
Tilefnið var sigur Füchse Berlín í þýsku bikarkeppninni í handknattleik á síðasta sunnudag en það var fyrsti stóri titilinn sem félagið vinnur í sögu sinni. Með grillinu vildi félagið þakka stuðningsmönnum sínum fyrir.
Rúmlega 1.000 stuðningsmenn Füchse Berlín mætti í grillveisluna í dag þar sem þeir gátu borðað eins og þeir gátu af pylsum og drukkið gos og bjór með.