Patrekur: FH átti sigurinn skilið

„Ég óska FH-ingum bara til hamingju með sigurinn, þeir áttu hann skilið í dag,“ sagði Patrekur Jóhannesson þjálfari Hauka eftir að Haukar biðu lægri hlut gegn FH, 32:25 á Ásvöllum í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik, en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit.

„Þeir voru bara beittari en við og grimmari jafnt í vörn sem sókn til að byrja með. Við þurftum svo að elta og náðum ekki því sem við ætluðum okkur út úr þessum leik,“ er meðal þess sem Patrekur sagði í viðtali við mbl.is að loknum leik í kvöld.

Viðtalið við Patrek má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert