Bjarki framlengir dvölina í Eisenach

Bjarki Már Elísson skorar fyrir Eisenach á leiktíðinni hjá Silvio …
Bjarki Már Elísson skorar fyrir Eisenach á leiktíðinni hjá Silvio Heinevetter, landsliðsmarkverði Þjóðverja og liðsmanni Füchse Berlin. mbl.is

Bjarki Már Elísson hefur skrifað undir nýjan samning við þýska 1. deildarliðið í handknattleik, Eisenach. Nýi samningurinn gildir fram á mitt næsta ár. Bjarki Már gekk til liðs við Eisenach á síðasta sumri og líkar vistin vel þótt liðinu hafi ekki vegnað sem skildi en það er komið með annan fótinn niður í aðra deild.

Bjarki, eins og svo margir aðrir leikmenn liðsins, ætla að taka slaginn með Eisenach á næsta keppnistímabili í 2. deildinni og freista þess að endurheimta sætið í 1. deildinni, falli liðið nú í vor eins og margt bendir til. Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson þjálfari og Hannes Jón Jónsson framlengdu nýverið samninga sína við félagið. Sömu sögu er að segja af fleiri núverandi leikmönnum Eisenach.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert