Stjarnan og Grótta mættust í fyrsta leik sínum í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik í Mýrinni í Garðabæ klukkan 19.45 í kvöld. Stjarnan sigraði 29:23. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
Stjarnan er þá 1:0 yfir í rimmunni en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitarimmuna. Stjarnan var án Sólveigar Láru Kjærnested sem er meidd og nær líklega ekki næsta leik heldur. Auk þess verður Hanna Guðrún Stefánsdóttir ekki meira með á tímabilinu.
Stjarnan | 29:23 | Grótta | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Leik lokið Stjarnan landaði öruggum sigri eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik. Staðan er 1:0 í rimmunni. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |