Oddaleikur hjá Ólafi og félögum

Ólafur Andrés Guðmundsson
Ólafur Andrés Guðmundsson Eva Björk Ægisdóttir

Ólafur Andrés Guðmundsson og samherjar í Kristinstad verða að leika oddaleik við Hammarby um sæti í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn í handknattleik eftir að þeir töpuðu naumlega, 25:24, fyrir Hammarby í fjórða leik liðanna í Stokkhólmi í kvöld.

Kristianstad var þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:10, en misstu dampinn í þeim síðari. Ólafur Andrés skoraði ekki mark í leiknum en var einu sinni vísað af leikvelli í tvær mínútur.

Oddaleikurinn verður á heimavelli Kristianstad.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert