Andri Berg áfram með FH-ingum

Andri Berg Haraldsson.
Andri Berg Haraldsson.

Handknattleiksmaðurinn reyndi Andri Berg Haraldsson hefur samið við FH-inga að nýju um að spila með þeim næstu tvö árin en þetta kemur fram í tilkynningu frá handknattleiksdeild félagsins.

Andri er 31 árs, skytta eða leikstjórnandi, og jafnframt mjög öflugur varnarmaður sem hefur verið í lykilhlutverki í varnarleik FH-inga síðustu árin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert