Strandhandboltamót Íslands um helgina

Strandhandboltamótið er haldið í 11 sinn um næstu helgi og hafa aldrei verið fleiri lið skráð til leiks. Um 200 keppendur taka þátt eða 20 lið og spilað er í sandinum á okkar frábæru strönd í Nauthólsvíkinni.

Í mótinu eru bæði karla og kvennalið og einnig nokkur sem eru blönduð en okkar besta handknattleiksfólk mætir til leiks ásamt gömlum kempum og öðrum sem gaman hafa að sprikkla í sandinum.

Mikil og góð stemmning hefur myndast í kringum mótið sem spilast undir dúndrandi strandtónlist og mörg af liðunum mæta í skrautlegum búningum sem kryddar einnig upplifunina.

Meðfylgjandi eru myndir frá fyrsta keppnisdegi mótsins í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert