Magnús Gunnar áfram í Víkinni

Magnús Gunnar Erlendsson verður áfram hjá Víkingi.
Magnús Gunnar Erlendsson verður áfram hjá Víkingi. mbl.is/Kristinn

Magnús Gunnar Erlendsson hefur gert nýjan eins árs samning við Víking R. og mun leika með liðinu í 1. deild karla í handknattleik næsta vetur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Víkingar sendu frá sér í dag.

Magnús gekk í raðir Víkings fyrir síðustu leiktíð en lék áður með Fram um áraraðir og fór á kostum með Fram þegar liðið varð Íslandsmeistari vorið 2013.

„Við þjálfararnir erum gríðarlega ánægðir með að samningar við Magnús séu nú í höfn. Magnús býr yfir mikilli reynslu sem leikmaður, æfir vel og er mikill og sterkur persónuleiki sem við horfum mikið í. Við erum nú með þrjá góða markmenn og verður því góð samkeppni um markmannsstöðuna í vetur sem er af hinu góða“ segir Ágúst  Þór Jóhannsson þjálfari Víkings í tilkynningu frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert