Kiel vann meistaraleikinn

Filip Jicha skoraði 5 mörk fyrir Kiel.
Filip Jicha skoraði 5 mörk fyrir Kiel. AFP

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel unnu fyrsta titil ársins í þýska handboltanum en Kiel hafði betur á móti Füchse Berlin, 24:18, í árlegum leik meistara meistaranna.

Kiel hafði undirtökin allan tíman en staðan eftir fyrri hálfleik var, 13:8. Filip Jicha var markahæstur í liði Kiel með 5 mörk.

Kiel vann öruggan sigur á Füsche Berlin í leiknum um þýska Ofurbikarinn - árlegum leik deildarmeistaranna og bikarmeistaranna í Þýskalandi.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert