Aron byrjaði með stórsigri

Aron Kristjánsson
Aron Kristjánsson Eva Björk Ægisdóttir

Danska meistaraliðið KIF Kolding Köbenhavn, sem Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari stýrir, hóf titilvörnina í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik með því að vinna stóran sigur á Bjerringbro/Silkeborg á útivelli, 25:16. Heimamenn voru marki yfir eftir rólegan fyrri hálfleik, 9:8.

Leikmenn KIF tóku öll völd á leikvellinum í síðari hálfleik. Vörnin small saman og hinn gamalreyndi markvörður, Kasper Hvidt, fór á kostum. Þá var ekki að sökum að spyrja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert