HK semur við ungan Haukamann

Pálmi Fannar Sigurðsson.
Pálmi Fannar Sigurðsson. Ljósmynd/HK

HK hefur samið við Pálma Fannar Sigurðsson um að leika með meistaraflokki félagsins í handbolta næstu tvö árin. Pálmi er 18 ára rétthent skytta sem einnig getur leyst stöðu leikstjórnanda.

Pálmi kemur til HK frá Haukum þar sem hann hefur leikið upp alla yngri flokka. HK mætir Akureyri í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta, en keppni á Íslandsmótinu hefst fimmtudagskvöldið 18. september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert