Fá frítt fyrir að mæta í bláu

Áhorfendur sem mæta í bláu annað kvöld í Safamýri fá …
Áhorfendur sem mæta í bláu annað kvöld í Safamýri fá frítt á leik Fram og Hauka. mbl.is/Golli

Keppni í Olís-deild karla í handbolta hefst annað kvöld með fjórum leikjum. Meðal leikja er viðureign Fram og Hauka á heimavelli Fram í Safamýri. Haukum er spáð 2. sætinu í deildinni í vetur, en Fram 8. sætinu.

Framarar vilja greinilega fá góðan stuðning í leiknum annað kvöld og byrja leiktíðina af krafti, því í auglýsingu Fram fyrir leikinn á morgun er sérstaklega tekið fram að þeir sem mæti í bláu í Safamýrina annað kvöld fái frítt á leikinn.

Leikur Hauka og Fram í 1. umferð Olís-deildar karla hefst klukkan 19.30 annað kvöld. Á sama tíma mætast Afturelding og Stjarnan í nýliðaslag í Mosfellsbæ, ÍR tekur á móti Val og Akureyri sækir HK-inga heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert