Kristófer: Varð að verja eitt víti

„Við sýndum bara mjög góðan karakter að vinna þennan leik. Þetta var jafnt allan tímann en við vorum svona skrefinu nær samt,“ sagði Kristófer Fannar Guðmundsson markvörður Fram og hetja liðsins í 22:21-sigri á Haukum í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Kristófer varði víti í stöðunni 22:21 þegar 52 sekúndur voru eftir af leiknum.

„Ég varð að verja eitt víti allavega. Ég var búinn að fá mig fimm mörk úr vítum. Það hefði verið nóg að verja bara þetta skot í leiknum. Það var geðveikt að verja þetta síðasta víti,“ sagði Kristófer.

„Við erum rosalega sáttir við þessi tvö stig og byrjum mótið mjög vel,“ sagði Kristófer við mbl.is eftir leikinn.

Viðtalið við Kristófer Fannar má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert