Gunnar: Tapað stig

„Þetta er tapað stig. Við vorum klaufar og fórum illa að ráði okkar í sókninni í seinni hálfleik eftir að hafa verið með 2-3 mörk í forskot,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari Íslandsmeistara ÍBV sem byrjuðu Íslandsmótið í ár með því að gera jafntefli við FH í Kaplakrika, 29:29 í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta.

„Stig á erfiðum útivelli er auðvitað jákvætt, en ég hefði viljað taka bæði stigin miðað við það hvernig leikurinn spilaðist,“ sagði Gunnar meðal annars í viðtali við mbl.is eftir leikinn í Kaplakrika í kvöld.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert