Olís-deild kvenna hefst í kvöld

Meistaraefnin í Gróttu taka á móti HK í 1. umferð …
Meistaraefnin í Gróttu taka á móti HK í 1. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. mbl.is/Golli

Keppni í Olís-deild kvenna í handbolta hefst í kvöld, þegar tveir leikir eru á dagskrá í 1. umferð Íslandsmóts kvenna. Gróttu er spáð efsta sætinu í deildinni, og Grótta leikur einmitt upphafsleik deildarinnar, þegar Seltirningar taka á móti HK klukkan 18.00 í kvöld.

Klukkan 20.00 mætast svo Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar í Kaplakrika, en 1. umferð lýkur svo á morgun með fjórum leikjum. 1. umferð í Olís-deild karla lýkur svo í kvöld þegar FH tekur á móti Íslandsmeisturum ÍBV klukkan 18.00 í Kaplakrika.

Olís-deild kvenna, 1. umferð
Föstudagurinn 19. september
18.00  Grótta - HK
20.00  FH - Haukar

Laugardagurinn 20. september
13.30  Fram - Selfoss
14.00  Stjarnan - Fylkir
15.00  Valur - KA/Þór
16.00  ÍR - ÍBV

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert