Þjóðverjar voru mun sterkari í leiknum og náðu sjö marka forskoti í fyrri hálfleik, 19:12. Liðin mætast aftur á morgun en leikirnir eru liður í undirbúningi Þjóðverja fyrir HM í Katar í janúar.
Þeir Patrick Groetzki og Johannes Sellin voru markahæstir hjá Þýskalandi með fimm mörk hvor og hinn ungi Andreas Wolff átti flotta innkomu í markinu.