Gróttuliðið fór vel af stað

Gróttukonur fagna í leiknum gegn HK í gærkvöldi.
Gróttukonur fagna í leiknum gegn HK í gærkvöldi. mbl.is/Árni Sæberg

Grótta, sem er spáð mikilli velgengni í Olís-deild kvenna á keppnistímabilinu sem hófst í gær, byrjaði keppnistímabilið af krafti gegn HK í gærkvöldi.

HK reyndist Gróttuliðinu engin fyrirstaða og þegar upp var staðið var munurinn 10 mörk, 27:17. Í hálfleik var aðeins þriggja marka munur, 14:11, Gróttu í hag sem lék á heimavelli sínum á Seltjarnarnesi.

Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en þegar kom fram í síðari hálfleik skildi leiðir. Sterk vörn Gróttu með Írisi Björk Símonardóttur í markinu braut hverja sókn HK á bak aftur. Íris varði alls 21 skot.

Sjá umfjöllun um leikinn í heild í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert