Íslenska karlalandsliðið í handknattleik skipað leikmönnum 21 árs og yngri verður í riðli með Noregi, Litháen og Eistlandi í næstu undankeppni HM en dregið var í riðla í Dublin í dag.
Undankeppnin fer fram í Litháen dagana 9.-11. janúar á næsta ári og er keppt um að komast í lokamótið í Brasilíu sem fram fer næsta sumar.
Aðeins eitt lið kemst áfram úr riðlinum á lokamótið.