Davíð: Nánast hreint rugl

„Fyrir utan fyrsta korterið var þetta frábær leikur hjá okkur, nánast hreint rugl,“ sagði Davíð Svansson, markvörður Aftureldingar, eftir að liðið lagði Val, 23:18, í annarri umferð Olís-deildar karla í handknattleik í Vodafonehöllinni í kvöld. Davíð átti frábæran leik eins fleiri í Aftureldingarliðinu. Hann varði nærri 20 skot og var með um 50% markvörslu.

„Eftir að náðum að jafna metin, 8:8, og aftur þegar við skoruðum síðasta markið í fyrri hálfleik þá var stemningin með okkur. Það var til fyrirmyndar hvernig við komum til leiks í síðari hálfleik með stemninguna með okkur,“ sagði Davíð.

„Það er frábært að vera fyrir aftan þessa vörn með turnana fyrir framan mig. Ef þeir vinna sitt verk þá verður eftirleikurinn auðveldur fyrir mig,“ sagði Davíð hærverskur og vildi lítið gera úr eigin frammistöðu en annan leikinn í röð fór hann á kostum í liði Aftureldingar.

Nánar er rætt við Davíð á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert