Fylkir fær aukinn liðsstyrk

Merki Íþróttafélagsins Fylkis.
Merki Íþróttafélagsins Fylkis.

Kvennalið Fylkis hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin sem framundan eru í Olís-deild kvenna. Hafdís Shizuka Iura hefur verið lánuð frá Fram til Fylkis og hefur hún fengið leikheimild og verður gjaldgeng með Fylkisliðinu í kvöld þegar það mætir Haukum í Fylkishöllinni kl. 19.30 í annarri umferð deildarkeppninnar. 

Hafdís er rétthent skytta  en getur einnig leikið sem leikstjórnandi. Hún er fædd 1994 og lék alla 22 leiki Fram í Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Hún á að baki leiki með U17 ára og U19 ára landsliðum Íslands. 

Auk viðureignar Fylkis og Hauka í Fylkishöllinni í kvöld kl. 19.30 mætast ÍBV og Íslandsmeistarar Vals í Eyjum klukkan 18. HK tekur á móti ÍR í Digranesi kl. 19.30 og á sama tíma verður flautað til viðureignar Stjörnunnar og Gróttu í Mýrinni annarsvegar og Selfoss og FH á Selfossi hinsvegar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert