Illa gengur hjá Tandra og félögum

Tandri Már Konráðsson
Tandri Már Konráðsson Árni Sæberg

Tandri Már Konráðsson var markahæstur hjá Ricoh þegar liðið steinlá í heimsókn sinni til Skövde í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Lokatölur, 27:19, en heimamenn voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13:11. 

Tandri Már skoraði fimm mörk fyrir Ricoh sem er nýliði í sænsku úrvalsdeildinni. Liðinu hefur gengið illa það sem af er deildarkeppninni. Eftir sigur í fyrstu umferðinni hefur Ricoh tapað fjórum leikjum í röð og er í hóp neðstu liða. Skövde er hinsvegar um miðja deild með sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert