Atli Ævar með 5 mörk í tapleik

Atli Ævar Ingólfsson.
Atli Ævar Ingólfsson. Ljósmynd/nordsjaelland-haandbold.dk

Atli Ævar Ingólfsson skoraði 5 mörk fyrir Guif í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld og var valinn besti maður liðsins eftir leikinn.

Þessi mörk línumannsins dugðu skammt því Guif tapaði fyrir Redbergslid, 28:25. Aron Rafn Eðvarðsson er markvörður Guif en þjálfari þess er Kristján Andrésson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert