Karen Helga og Ragnheiður í hópnum gegn Svíum

Ragnheiður Júlíusdóttir í leik með U20-landsliði Íslands í apríl.
Ragnheiður Júlíusdóttir í leik með U20-landsliði Íslands í apríl. mbl.is/Ómar

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik hefur valið þá 16 leikmenn sem fara til Svíþjóðar og leika vináttulandsleiki við heimamenn 9. og 11. október.

Tveir nýliðar eru í hópnum að þessu sinni en það eru þær Karen Helga Díönudóttir, fyrirliði Hauka, og Ragnheiður Júlíusdóttir skytta úr Fram. Þá er Rut Jónsdóttir í hópnum á nýjan leik eftir að hafa verið frá keppni í 10 mánuði vegna meiðsla.

Hópurinn heldur af stað til Svíþjóðar á miðvikudaginn eftir viku og fer fyrri leikurinn fram í Malmö fimmtudaginn 9. október kl. 18.15 að íslenskum tíma, en sá seinni í Skövde laugardaginn 11. október kl. 17.15 að íslenskum tíma.

Markmenn:
Florentina Stanciu, Stjarnan
Guðrún Ósk Maríasdóttir, FH
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylkir

Aðrir leikmenn:
Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus
Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof
Hildigunnur Einarsdóttir, Tertnes
Karen Helga Díönudóttir, Haukar
Karen Knútsdóttir, Nice
Karólína Lárudóttir, Grótta
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram
Ramune Pekarskyte, Le Havre
Rut Jónsdóttir, Randers
Steinunn Hansdóttir, Skanderborg
Sunna Jónsdóttir, BK Heid
Unnur Ómarsdóttir, Skrim
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Våg Vipers

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert