Leik ÍBV og HK sem fara átti fram í kvöld í Olís-deild karla í handknattleik hefur verið frestað. Ákveðið hefur verið að leikurinn fari fram mánudaginn 13. október kl. 18.
ÍBV og HK geta því dregist enn frekar aftur úr öðrum liðum en Íslandsmeistarar ÍBV eru með 1 stig eftir 3 leiki, og HK ekkert. Fjórir leikir eru á dagskrá í kvöld eins og lesa má um HÉR.