Þórey með sjö mörk

Þórey Rósa Stefánsdóttir á fullri ferð.
Þórey Rósa Stefánsdóttir á fullri ferð. mbl.is/Ómar

Stórleikur Þóreyjar Rósu Stefánsdóttur, landsliðskonu í handknattleik, dugði Vipers Kristiansand ekki til sigurs í 16-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í gær. Hún skoraði sjö mörk og þótti leika afar vel fyrir liðið þegar það tapaði fyrri Hildigunni Einarsdóttur og samherjum í Tertnes, 27:23, á heimavelli Tertnes í Bergen. Hildigunnur skoraði eitt mark.

Storhamar, liðið sem Alfreð Finnsson þjálfar, komst örugglega áfram með sigri á Fredrikstad, 24:17. Unnur Ómarsdóttir og samherjar í Skrim Kongsberg töpuðu fyrir Byåsen, 38:32, og eru úr leik. iben@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert