Sigur hjá Karen - jafntefli hjá Ramune

Karen Knútsdóttir
Karen Knútsdóttir mbl.is/Ómar Óskarsson

Íslendingalið voru í eldlínunni í franska handboltanum í kvöld og fagnaði Karen Knútsdóttir sigri en Ramune Pekarskyte gerði jafntefli.

Nice sigraði Toulon 27:26 á heimavelli eftir mikla spennu og skoraði Karen 1 mark fyrir Nice á þeim 15 mínútum sem hún var inn á.

Ramune skoraði þrívegis fyrir Le Havre sem gerði jafntefli við Issy á heimavelli 28:28 en hún spilaði í 22 mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert