Daníel magnaður í sigri SönderjyskE

Daníel Freyr Andrésson fór á kostum í dag.
Daníel Freyr Andrésson fór á kostum í dag. mbl.is/Eva Björk

Daníel Freyr Andrésson var svo sannarlega hetja SönderjyskE þegar liðið vann Odder 28:25 í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Odder var þremur mörkum yfir, 23:20, um miðjan seinni hálfleik þegar Daníel kom inná í mark SönderjyskE fyrir Anders Petersen. Odder skoraði ekki mark næstu 13 mínúturnar, og skoraði í heild aðeins tvisvar sinnum í 10 tilraunum gegn FH-ingnum.

SönderjyskE er á meðal efstu liða í deildinni með 13 stig eftir 10 leiki en Odder er í neðsta sætinu með 3 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert