16 marka sigur Evrópumeistaranna

Nikola Karabatic skoraði 6 mörk fyrir Frakka.
Nikola Karabatic skoraði 6 mörk fyrir Frakka. AFP

Evrópumeistarar Frakka hófu titilvörnina með stórsigri gegn Tékkum þegar þjóðirnar áttust við í Chambery í Frakklandi í kvöld í 1. umferð undankeppni Evrópumótsins.

Evrópumeistararnir fóru á kostum og unnu 16 marka sigur, 41:25, eftir að staðan hafði verið, 20:12, í hálfleik.

Nikola Karabatic og Guillaume Joli skoruðu 6 mörk hvor fyrir Frakka og Mathieu Grebille var með 5 mörk. Hjá Tékkum, sem léku án stórskyttunnar Filip Jicha, var Petr Linhart markahæstur með 8 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert