Patrekur: Fyrri hálfleikurinn frábær

Patrekur Jóhannsson þjálfari Hauka sagði eftir jafnteflið við FH í kvöld en leikur sinna manna hafi verið kaflaskiptur eins og í allan vetur.

„Þetta var kaflaskipt hjá okkur eins og það hefur verið í allan vetur. Fyrri hálfleikurinn var frábær af okkar hálfu, leikgleðin var mikil og maður sá að strákarnir fundu sig vel það sem maður óskaði sér eftir hörmungarnar fyrir norðan. Í seinni hálfleik misstu við niður dampinn og sóknin hjá okkur var allt of hæg. Við lendum svo undir þegar lítið var eftir og úr því sem komið var er ég sáttur við jafnteflið,“ sagði Patrekur við mbl.is eftir leikinn en allt viðtalið er hægt að skoða í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert