Rut Jónsdóttir skoraði tvö mörk í dag þegar lið hennar Randers gerði 28:28-jafntefli við annað danskt lið, Odense, í Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik.
Randers hafði unnið fyrri leik liðanna 30:26 og vann því einvígið samtals 58:54. Þar með komst liðið í 16-liða úrslit keppninnar.