Ágúst valdi einn nýliða fyrir Ítalíuleikinn

Ásta Birna Gunnarsdóttir er komin í landsliðið á nýjan leik.
Ásta Birna Gunnarsdóttir er komin í landsliðið á nýjan leik. mbl.is/Ómar

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik hefur valið þá 16 leikmenn sem fara til Ítalíu og mæta Ítölum í forkeppni fyrir HM. Einn nýliði er í hópnum en það er Þórey Ásgeirsdóttir, Kongsvinger. Þá er Ásta Birna Gunnarsdóttir komin í hópinn á ný eftir meiðsli.

Liðið heldur af stað mánudaginn 24. nóvember til Kaupmannahafnar og æfir þar og gistir í eina nótt og heldur síðan til Ítalíu á þriðjudaginn.  Liðið mun mæta Ítölum í Chieti fimmtudaginn 27. nóvember kl  16.30.

Hópurinn er eftirfarandi:

Markmenn:
Florentina Stanciu, Stjörnunni
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylki

Aðrir leikmenn:
Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus
Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram
Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof
Brynja Magnúsdóttir, Flint Tönsberg
Hildigunnur Einarsdóttir, Tertnes
Hildur Þorgeirsdóttir, Koblenz
Karen Knútsdóttir, Nice
Ramune Pekarskyte, Le Havre
Rut Jónsdóttir, Randers
Steinunn Björndóttir, Fram
Sunna Jónsdóttir, BK Heid
Unnur Ómarsdóttir, Skrim
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Våg Vipers
Þórey Ásgeirsdóttir, Kongsvinger

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert