Fram heldur efsta sætinu

Hekla Rún Ámundadóttir sækir að marki Fylkis í leiknum í …
Hekla Rún Ámundadóttir sækir að marki Fylkis í leiknum í dag. Hún skoraði fimm mörk. mbl.is/Golli

Fram heldur efsta sætinu í Olísdeild kvenna í handknattleik eftir næsta auðveldan sigur á Fylki í tíundu umferðinni. Lokatölur 29:20 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18:9.

Framarar léku mjög vel í fyrri hálfleik, vörnin sterk og Nadia Bordon góð í markinu þar fyrir aftar og fjölmörk hraðaupphlaupsmörk komu eins og oft vill verða þegar þetta tvennt fer saman.

Sigurbjörg Jóhannsdóttir var markhæst hjá Fram með 7 mörk og Marthe Sördal gerði sex en hjá þær Thea Imani Sturludóttir, Patricia Szölösi og Sigrún Birna Arnardóttir gerðu fimm mörk hver fyrir Fylki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert