Guðjón Valur með 9 gegn Flensburg

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk í kvöld.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk í kvöld. mbl.is/Ómar

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var ásamt Kiril Lazarov markahæstur í liði Barcelona þegar liðið skellti Flensburg á Spáni í kvöld, 36:27, í Meistaradeild Evrópu í handknattleik.

Flensburg var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16:14, en Barcelona fór á kostum eftir hlé og skoraði 22 mörk gegn 11.

Börsungar komust þar með upp fyrir Aron Kristjánsson og lærisveina hans í KIF Kolding í B-riðlinum. Sex umferðum af tíu er lokið.

Staðan: Barcelona 11, KIF Kolding 10, Flensburg 6, Wisla Plock 5, Alingsas 2, Besiktas 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert