Öruggur sigur Víkinga á Selfossi

Jóhann Reynir Gunnlaugsson var markahæstur hjá Víkingum með sex mörk.
Jóhann Reynir Gunnlaugsson var markahæstur hjá Víkingum með sex mörk. Ljósmynd/Gunnlaugur Júlíusson

Víkingar jöfnuðu í kvöld Gróttu að stigum á toppi 1. deildar karla í handknattleik með því að vinna öruggan sigur á Selfossi, 25:17. Grótta á þó leik til góða.

Víkingar voru sex mörkum yfir í hálfleik í dag, 13:7. Jóhann Reynir Gunnlaugsson skoraði sex mörk og þeir Jón Hjálmarsson og Arnar Theodórsson komu næstir með fimm mörk. Hjá Selfyssingum var Sævar Ingi Eiðsson markahæstur með 4 mörk.

Grótta og Víkingur eru með 18 stig. Selfoss er í 5. sæti með 11 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert