ÍR-ingar eru komnir í sextán liða úrslitin í bikarkeppni karla í handknattleik eftir sigur á toppliði 1. deildar, Gróttu, á Seltjarnarnesi í kvöld en lokatölur urðu 26:23. Staðan í hálfleik var 18:13, ÍR í hag.
Það kemur því í hlut ÍR-inga að fara til Vestmannaeyja og leika þar við Íslandsmeistara ÍBV í 16-liða úrslitum keppninnar um næstu helgi.
Mörk Gróttu: Viggó Kristjánsson 7, Þorgeir Bjarki Davíðsson 5, Aron Valur Jóhannsson 5, Styrmir Sigurðsson 3, Þráinn Orri Jónsson 3.
Mörk ÍR: Arnar Birkir Hálfdánsson 8, Sigurjón Friðbjörn Björnsson 5, Davíð Georgsson 4, Sturla Ásgeirsson 4, Björgvin Þór Hólmgeirsson 3, Brynjar Steinarsson 1, Jón Heiðar Gunnarsson 1.