Ari Magnús í leikbann

Ari Magnús Þorgeirsson reynir markskot í leik við Akureyri á …
Ari Magnús Þorgeirsson reynir markskot í leik við Akureyri á síðasta laugardag. Hann tekur út leikbann í næsta leik Stjörnunnar. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ari Magnús Þorgeirsson, handknattleiksmaður hjá Stjörnunni, var í dag úrskurðaður í eins leiks keppnisbann af aganefnd HSÍ. Hann var útilokaður undir leikslok í viðureign Stjörnunnar og Akureyrar í Olís-deildinni á síðasta laugardag.

Útilokunni fylgdi skýrsla frá dómurum leiksins. 

Ari Magnús tekur leikbannið út á fimmtudagskvöldið þegar Stjarnan færa Hauka í heimsókn í TM höllina í Garðabæ í 13. umferð deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert