Aron verður undir stjórn Ortega

Carlos Ortega t.v. tekur í hönd Alfreðs Gíslasonar, þjálfara Kiel.
Carlos Ortega t.v. tekur í hönd Alfreðs Gíslasonar, þjálfara Kiel. AFP

Carlos Ortega, þjálfari ungverska meistaraliðsins Veszprém sem Aron Pálmarsson gengur til til liðs við um mitt næsta ár, hefur framlengt samning sinn við félagið fram á mitt ár 2017. Ortega hefur stýrt Veszprém síðustu tvö ár með afar góðum árangri.

Undir stjórn Ortega hefur Veszprém fest sig í sessi sem eitt sterkasta félagslið í Evrópu í handknattleik. Það ber höfuð og herðar yfir önnur lið í heimalandinu og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í vor sem leið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert