Lackovic vart með Króötum á HM

Blazenko Lackovic verður vart með króatíska landsliðinu á HM í …
Blazenko Lackovic verður vart með króatíska landsliðinu á HM í Katar. AFP

Afar ósennilegt er að stórstjarnan Blazenko Lackovic leiki með króatíska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Katar í janúar. Lackovic meiddist snemma í viðureign Vardar Skopje og Veszprém um síðustu helgi. 

Komið hefur í ljós að rifa í annarri hásin kappans og þykir það verða hreint kraftaverk hafi hásinin króið fullkomlega áður en átökin á HM hefjast um miðjan janúar. Króatar verða með Bosníu, Makedóníu, Túnis, Íran og lærisveinum Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu í B-riðli heimsmeistaramótsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert