„Býr meira í liðinu“

Ágúst Elí Björgvinsson stóð vaktina vel í FH markinu í kvöld þegar FH-ingar unnu þriggja marka sigur á Akureyringum í Olís-deildinni.

„Við byrjuðum leikinn ekkert sérstaklega vel. Við fórum illa með færin og vörnin fór í gang fyrr en á 20. mínútu. Við náðum sem betur fer að laga okkar leik og erum á leið í deildabikarinn sem var eitt af markmiðum okkar. Við vildum hins vegar hafa gert betur á móti toppliðunum. Það býr meira í liðinu og nú þurfum við bara að æfa vel í fríinu og mæta sterkari til leiks eftir það,“ sagði Ágúst Elí við mbl.is eftir leikinn en hann varði 17 skot í leiknum og þar af tvö vítaköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert