Elías Már spilar kveðjuleikinn með Akureyri

Elías Már Halldórsson tekur skot gegn ÍBV fyrr í vetur.
Elías Már Halldórsson tekur skot gegn ÍBV fyrr í vetur. Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson

Elías Már Halldórsson leikur í kveðjuleik sinn með Akureyringum í leiknum gegn FH í Olís-deildinni en leikur liðanna hefst í Kaplakrika klukkan 18.30.

„Ég er ekki búinn að taka ákvörðun til hvaða félags ég fer. Ég neita því ekki að ég hef heyrt í nokkrum liðum og ég mun ákveða mig á næstu dögum hvert ég fer,“ sagði Elías Már við mbl.is.

Samkvæmt heimildum mbl.is hafa Haukar rætt við Elías Má en hann lék með Hafnarfjarðarliðinu áður en hann gekk í raðir Akureyringa og þá hefur Stjarnan sömuleiðis áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert