Gríðarlega stoltur

„Ég er gríðarlega ánægður með sigurinn og stoltur af mínum strákum," sagði Guðlaugur Arnarsson, þjálfari Fram, eftir sigurinn á Stjörnunni, 25:24, í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld. 

Eftir sigurinn sigur Fram í áttunda sæti tveimur stigum á undan Stjörnunni með 12 stig. 

„Það var vitað mál fyrir leikinn að um baráttu viðureign yrði að ræða milli tveggja liða sem eru að berjast fyrir tilverurétti sínum í deildinni. Baráttan var okkar megin," sagði Guðlaugur en nánar er rætt við hann á meðfylgjandi myndskeiði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert