Tveir lítt reyndir í HM-hópi Arons

Aron Kristjánsson landsliðþjálfari í handknattleik karla hefur lokaundirbúning fyrir HM …
Aron Kristjánsson landsliðþjálfari í handknattleik karla hefur lokaundirbúning fyrir HM 30. desember. mbl.is/Ómar

Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari í handknattleik hefur valið 20 manna landsliðshóp til undirbúnings fyrir HM í Katar sem fram fer í janúar. Athygli vekur að í hópnum eru tveir leikmenn sem hafa ekki mikla reynslu af landsliðinu, Guðmundur Árni Ólafsson, hornamaður hjá Mors-Thy í Danmörku og Tandri Már Konráðsson, hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Ricoh. 

Guðmundur Árni á að baki einn landsleik og Tandri Már tvo leiki. 

Þórir Ólafsson og Ólafur Gústafsson eru í ekki í hópnum. Ólafur er meiddur og var heldur ekki í 28 manna hópnum sem Aron valdi fyrir skömmu en út þeim hópi getur hann valið leikmenn til þátttöku á heimsmeistaramótinu. 

Ólafur A. Guðmundsson er heldur ekki valinn. Hann hefur lítið leikið síðustu vikur með Burgdorf í Þýskalandi vegna meiðsla. 

Liðið kemur saman til æfinga 30. desember nk. Þá mun liðið leika tvo vináttulandsleiki við Þjóðverja í Laugardalshöll í byrjun janúar og miðasala er hafin á midi.is. Liðið tekur svo þátt í æfingarmóti í Danmörku 9.-11. janúar. Fyrsti leikur Íslands á HM verður gegn Svíþjóð föstudaginn 16.janúar.

Markmenn:

Aron Rafn Eðvarðsson, Eskilstuna Guif

Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club

Aðrir leikmenn:

Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen

Arnór Atlason, St. Raphael

Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club

Aron Pálmarson, THW Kiel

Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes

Bjarki Már Gunnarsson, Aue

Guðjón Valur Sigurðsson, Barcelona

Guðmundur Árni Ólafsson, Mors Thy Handball

Gunnar Steinn Jónsson, Vfl Gummersbach

Kári Kristján Kristjánsson, Val

Róbert Gunnarsson, Paris Handball

Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf

Sigurbergur Sveinsson, HC Erlangen

Snorri Steinn Guðjónsson, Selestat Alsace HB

Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein-Neckar Löwen

Sverre Andreas Jakobsson, Akureyri

Tandri Konráðsson, Ricoh HK

Vignir Svavarsson, HC Midtjylland ApS

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert