Þórir Evrópumeistari með Noreg

Stine Bredal Oftedal sækir að hinni spænsku Patricia Elorza í …
Stine Bredal Oftedal sækir að hinni spænsku Patricia Elorza í úrslitaleiknum í Búdapest í kvöld. AFP

Norska landsliðið í handknattleik kvenna, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, varð Evrópumeistari kvenna í handknattleik í sjötta sinn fyrir stundu þegar liðið vann spænska landsliðið í úrslitaleik í Búdapest, 28:25. Spánverjar voru tveimur mörkum yfir  í hálfleik, 12:10. 

Þetta er í annað sinn sem norska landsliðið verður Evrópumeistari undir stjórn Þóris. Fyrra skiptið var 2010 og síðan vann liðið silfurverðlaun á EM fyrir tveimur árum með Þóri í brúnni.

Spánverjar voru sterkari í fyrri hálfleik í úrslitaleiknum og voru m.a. með fimm marka forskot um skeið, 10:5.

Norska liðið jafnaði metin fljótlega í síðari, 12:12, og náði síðan yfirhöndinni sem það lét aldrei af hendi. Norðmenn voru fjórum yfir, 26:22, þegar átta mínútur voru leiksloka en þá var lið þeirra manni færra í tvígang með stuttu millibili. Það nýttu Spánverjar sér til þess að minnka muninn í eitt mark, 26:25. Silja Solberg sá til þess í tvígang undir lokin að spænska liðinu tókst ekki að jafna þegar hún varði í opnum færum. 

Þetta er í 11. sinn sem Evrópumót kvenna er haldið. Norska landsliðið hefur unnið til úrslita á tíu þeirra, þar af á þremur síðustu mótum undir stjórn Þóris. Þetta voru sjöttu gullverðlaun norska landsliðsins á ellefu Evrópumeistaramótum. 

Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari Evrópumeistara Noregs í handknattleik kvenna.
Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari Evrópumeistara Noregs í handknattleik kvenna. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert