Keppnistímabilið á enda hjá Glandorf

Holger Glandorf .
Holger Glandorf . AFP

Evrópumeistarar Flensburg í handknattleik karla urðu fyrir miklu áfalli um helgina þegar örvhenta skyttan Holger Glandorf sleit hásin í kappleik við Kiel. Af þeim sökum leikur hann ekkert meira með liðinu á þessu keppnistímabili. 

Forráðamenn Flensburg hafa brugðist hratt við og fengið Svíann Albin Tingsvall til liðs við félagið. Tingsvall, sem var samningsbundinn Lugi, skrifaði í morgun undir samning við Flensburg sem gildir fram á mitt næsta ár. Tingsvall er 26 ára gamall. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert