Sigur eftir tvo tapleiki hjá Einari

Einar Jónsson gerir það gott með norska kvennaliðið Molde í …
Einar Jónsson gerir það gott með norska kvennaliðið Molde í B-deildinni. Steinn Vignir

Einar Jónsson er kominn inn á sigurbraut á nýjan leik með Molde í norsku B-deild kvenna í handknattleik. Í gær vann Molde lið Rælingen, 25:15, á heimavelli. Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði eitt mark fyrir Rælingen sem er í fjórða sæti deildarinnar.

Molde er hinsvegar í öðru sæti með 20 stig eftir 12 leiki. Sola er efst með 23 stig. Molde vann níu fyrstu leiki sína í deildinni í vetur en tapað tveimur leikjum með skömmu millibili, fyrir Sola og Levanger. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert