Aldrei auðvelt á móti Stjörnunni

„Það er aldrei auðvelt að spila á móti Stjörnunni,“ sagði Ásta Birna Gunnarsdóttir leikmaður Fram eftir að liðið hafði tryggt sér sigur í deildabikarnum í handknattleik kvenna í dag með 25:20 sigri á Stjörnunni.

Ásta Birna átti ljómadi góðan leik en sagði að þrátt fyrir fimm mara sigur hefði leikurinn ekki verið auðveldur. „Við byrjuðum nú ekkert of vel, en síðan lokuðum við vörninni og fórum að spila betur,“ sagði hún.

Spurð hvort þetta væri ekki bara einn af mörgum bikurum sem liðið ætlaði sér í vetur sagði hún: „Við tökum bara einn leik fyrir í einu og sjáum hverju það skolar okkur!“ Síðan bætti hún brosandi við: „Auðvitað er það markmiðið að ná í sem flesta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert